Sumargrill
Grilltímabilið í hámarki. Allir að grilla!!!
Húsmæður gleðjast yfir því að þurfa ekki að standa yfir
pottunum, því bóndinn sér um grillið. VEI!!!
Þannig gengur þetta fyrir sig:
· Frúin verslar í matinn.
· Frúin býr til salat, græjar grænmeti sem á að grilla,
og býr til sósu.
· Frúin undirbýr kjötið. Finnur til réttu kryddin,
setur kjötið á bakka ásamt grilláhöldum.
· Bóndinn situr við grillið, með bjór í annarri.
Lykilatriði:
· Bóndinn setur kjötið á grillið!
· Frúin fer inn, finnur til diska og hnífapör.
· Frúin fer út, og segir bóndanum að kjötið sé að brenna.
· Bóndinn þakkar henni fyrir, og biður hana um að koma
með annan bjór á meðan hann tæklar ástandið.
Annað lykilatriði:
· Bóndinn tekur kjötið af grillinu, og réttir frúnni.
· Frúin leggur á borð. Diskar, hnífapör, sósur, salöt
og annað meðlæti, ratar á borðið.
· Eftir matinn gengur frúin frá öllu.
Mikilvægast af öllu:
· Allir þakka BÓNDANUM fyrir matinn, og hversu vel HONUM
tókst upp.
· Bóndinn spyr frúna hvernig henni hafi líkað
"frídagurinn"...
.........og eftir að hafa séð svipinn á henni, ákveður
hann að það er ómögulegt að gera konum til geðs.